Professional MN7

359,000 kr.

Professional MN7 er nýtt hjól frá QWIC, hannað og framleitt fyrir hjólaleigu markaðinn í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu. Hjólið er ekki til sölu á almennum markaði í þessum löndum, en við höfum náð samning við QWIC um sölu á hjólunum. Meira.

Categories: ,

Description

Professional MN7 er nýtt hjól frá QWIC, hannað og framleitt fyrir hjólaleigu markaðinn í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu. Hjólið er ekki til sölu á almennum markaði í þessum löndum, en við höfum náð samning við QWIC um sölu á hjólunum.

Við hönnun á hjólinu var haft að leiðarljósi: einfaldleiki og þægindi; sterkbyggt og lágmarks viðhaldsþörf. Gjörð og teinar eru með mikinn styrkleika og dekk með háa “sprengjuvörn.” Hjólið hentar bæði til einkanota eða þar sem margir hafa aðgang að því. Með öðrum orðum – Professional MN7 er gæða dugnaðarforkur.

417 Wh rafhlaða. Við á kaup á hjólinu er hægt að velja stærri rafhlöðu 540 Wh.

Nettur skjár/stjórnborð á stýri með hnöppum til að auka og minnka afl, kveikja á ljósum; hraðamæli, rafhlöðumæli, gönguaðstoð o.fl.

Kröftugur og hljóðlátur Bafang M200 miðjumótor með QWIC hugbúnaði. 65 Nm togkraftur.

7 innbyggðir gírar, glussa diskabremsur, lokuð keðjuhlíf, ál -aurhlífar, gott sæti, LED fram og afturljós o.m.fl.

Nú eru brekkurnar ekkert mál – bara gaman!

Professional MN7

Stærð rafhlöðuDrægniVerð á hjóli
417 Wh55 - 140 km359.000
540 Wh75 - 180 km399.000
  • Kröftugur og hljóðlátur 250 W/36V Bafang M200 miðjumótor. 65 Nm togkraftur.
  • QWIC hugbúnaður – með kraft og þægindi að leiðarljósi.
  • 540 Wh rafhlaða, innbyggð í framstellið.
  • Hleðslutæki 4A.
  • Einfalt stjórnborð með nettum skjá  á stýri og 5 þrepa hraðastilli, rafhlöðumæli, gönguhnappur þar sem mótor aðstoðar þegar hjólið er teymt o.m.fl.
  • 7 gíra viðhaldsfrír Shimano Nexus gírskiptir, innbyggður í afturhjóli (engin utanáliggjandi tannhjól).
  • Bremsur: NUTT glussa diskabremsur að framan og aftan.
  • LED ljós að framan og aftan. Framljós 30 LUX.
  • MIK-HD bögglaberi sem er byltingarkend hönnun. Með einu klikki er hægt að festa á bögglaberann, ýmsar gerðir af körfum, töskum og barnastól. Einnig fylgir þreföld teygja fyrir vörur.
  • Stöðugur standari, bjalla o.fl.
  • Hrað-sætisklemma, til að hækka og lækka sæti.
  • Dekk: Vredestein Perfect Xtreme – með háa „sprengjuvörn.“
  • Hjólastærð: 28 tommur.
  • Þyngd: 24.8 kg (án rafhlöðu).
  • Litur: Burstuð ál-áferð. Ekkert málningarlakk; ef rispa kemur á stellið, þá stingur hún ekki í stúf og verður hluti af hjólinu.
  • Stærð: 50 Unisex. Hjólið passar flestum í hæð: 1,60 m – 1,85 m.

Ábyrgð:
–  Hjólastell 5 ár
–  Rafbúnaður 2 ár

Rafhlaða

Rafhlaðan er dýrasti og viðkvæmasti hluturinn á rafmagnshjólinu, þess vegna er afar brýnt að meðhöndla rafhlöðuna rétt frá upphafi, svo drægnin og líftíminn verði sem mestur.

Það er eðli allra Litíum-ion rafhlaða að þær rýrna með tímanum, jafnvel þó þær séu ekki í notkun. Rafhlöðuframleiðendur gefa út að rýrnunin sé allt að 15% á ári. Ef rafhlaðan fær rétta meðhöndlun frá upphafi, verður rýrnunin minni. Ábyrgðartími rafhlöðunnar er 2 ár (Mira Tour 5 ár) að því gefnu að hún sé rétt meðhöndluð.

  • Kjörhitastig Litíum-ion rafhlaðna er 25°C.
  • Það er afar brýnt að tæma nánast alla hleðsluna út af nýrri rafhlöðu í fyrstu 10 skiptin (helst alveg). Eftir það hefur rafhlaðan náð fullri afkastagetu. Ef þetta er ekki gert, er hætta á að rafhlaðan nái aldrei fullri afkastagetu. Eftir þessi 10 skipti, skal ekki hlaða rafhlöðuna of ört – helst ekki fyrr en hún er undir 50%. Annan til þriðja hvern mánuð er æskilegt að fara með hleðsluna nokkuð neðarlega 20 – 15%.
  • Þegar rafhlöðunni er stungið í hleðslu, þarf hitastigið í sjálfri rafhlöðunni, vera a.m.k. 10°C. Best ef hitastigið er sem næst stofuhita, því þá er það næst kjörhitastiginu sem er 25°C.
  • Ef rafhlaðan tæmist – verður að hlaða hana innan 8 klst. Annars verður hún fyrir óbætanlegum skaða.
  • Rafhlaða sem á að standa ónotuð í nokkra mánuði, geymist best við 60 – 70% hleðslu. Ráðlegt er að aftengja rafhlöðuna frá hjólinu. Stingið svo rafhlöðunni í hleðslu einu sinni í mánuði í u.þ.b. 20 – 30 mínútur, eða þar til kjörgeymslustöðu 60 – 70% er náð. (Betra er að fullhlaða en að hlaða ekki neitt). Það er afar brýnt að fylgja þessu eftir. Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki er hlaðið a.m.k. á 3ja mánaða fresti.
  • Ekki láta rafhlöðuna standa lengur í hleðslutækinu en 48 klst. Eftir hleðslu, þarf að taka hleðslutækið úr sambandi úr veggtenglinum.
  • QWIC notar einungis nýjustu og bestu Litíum-ion rafhlöður sem finnast á markaðnum. Þær eru í flokki 18650 NCM Li-ion CAN-BUS og 21700 NCM Li-ion CAN-BUSsem eru útbúnar nýjustu BMS tækni (Battery Management System) – sama tækni og bílaiðnaðurinn notar.

Drægni rafhlöðu og almennt viðhald

Ýmsir utanaðkomandi þættir skipta máli m.a.:

  • Uppgefnar drægnistölur frá framleiðanda miðast við kjöraðstæður sem er: malbikaður og sléttur vegur, gíraval, veðurfar, 75 kg hjólreiðamaður og ekkert hlass; 22 – 25°C hitastig, stöðugur 20 km hraði, enginn mótvindur og aldrei stoppað.
  • Í kulda er drægnin styttri. Við 0°C allt að 30% og við -10°C allt að 50% (hámarks viðmiðunar tölur). Ávallt skal taka vindkælingu með í útreikninginn (- 2°C lofthiti og 6 m/sek., er á við – 9°C)
  • Hvaða þrep er kraftstillirinn stilltur á 1 -5.
  • QWIC hjól með Bafang mótor, er oftast nóg að hjóla á krafti 1– 3 á jafnsléttu– en í brekkum á krafti  4 og 5.
  • Réttur loftþrýstingur í dekki hefur mikið að segja. Við daglega notkun er best er að pumpa á ½ mánaða fresti.
  • Æskilegast er að geyma hjólið inni þegar það er ekki í notkun.
  • Forðist öll högg á dekk og felgur, þegar hjólað er upp á eða fram af gangstéttabrún (sem skal helst forðast). Ef höggið er mikið er alltaf hætta á að teinn brotni eða slanga springi.
  • Best er að þrífa hjólið með rakri tusku og sápulegi. Vatnsþrýstingur er stranglega bannaður við þrif á mótor, rafbúnaði og gírnafi.
  • Reglulegt viðhald og þrif er mjög mikilvægt.

 

Annað sem gott er að vita

  • Við flutning á alltaf að taka rafhlöðuna úr hjólinu.
  • Forðist að „troða“ hjólinu inn í skott á bíl. Reynslan sýnir að oftast verður einhver skaði, s.s. á brettum, keðjuhlíf, ljósi o.fl.
  • Aldrei má setja hjólið í „hefðbundinn hjólastand“ (stundum kallað gjarðarbani). Hjólið er þungt og við hliðar högg getur gjörðin auðveldlega skemmst.
  • Leggið alltaf hjólinu þar sem hjólið er sýnilegt og fólk á ferli. Annars er hætta á að þjófarnir geti verið að dunda sér að sarga lásinn í sundur með slípirokki o.s.fr.