Description
Apríl 2023
MIRA TOUR er stórglæsilegt og sterkbyggt hjól með mikinn stífleika og frábæra aksturseiginleika, sem hentar bæði í borg og á malarvegum. Það uppfyllir allar væntingar fólks sem gerir kröfur um gæði og þægindi. Hjólið hefur fengið frábæra dóma í fagtímaritum og viðtökur hjá hjólaverslunum í Þýskalandi og Hollandi.
5 ára ábyrgð á rafhlöðu.
756 Wh rafhlaða.
Kraftmikill og hljóðlátur BAFANG miðjumótor með mikinn togkraft 80 Nm.
Reim í stað keðju, sem gerir hjólið léttara, þýðara og hljóðlátara. Líftími reimarinnar er margföld á við keðju eða allt að 30.000 km.
LCD litaskjár með USB tengi til að hlaða síma o.fl.
Lágt og vítt uppstig,
Q-dagljós.
Vandað handverk m.a. tvöfaldar suður og sumar þeirra fínpússaðar. Afar smekklegur frágangur á börkum og snúrum.
Viðhaldslítið hjól: 7 innbyggðir gírar (engin utanáliggjandi tannhjól), Shimano diskabremsur, ál-aurbretti, gott sæti með stillanlegum dempara, stillanlegur framdempari, stillanlegt stýri, ljósanemi sem kveikir sjálfkrafa á ljósum er rökkva tekur, LED fram og afturljós o.m.fl.
AUKAHLUTUR: Hleðslustöð sem hleður rafhlöðuna á u.þ.b. þremur klst. – eða vaktar og viðheldur hleðslunni á rafhlöðunni í u.þ.b. 70%, þegar hún stendur ónotuð í langan tíma. Hleðslustöðin hlaut hin virtu alþjóðlegu iF hönnunarverðlaun.
AUKAHLUTUR: GPS þjófavörn. (Með fyrirvara um áskrift á Íslandi)
Nú eru brekkurnar ekkert mál – bara gaman!
Mira Tour
Rafhlaða | Drægni | Verð á hjóli |
---|---|---|
756 Wh | 105 - 170 km | 795.000 kr. |
Verð á hjóli er 795.000 kr., og miðast við staðal rafhlöðu 522 Wh. Núna býðst hjólið með 756 Wh rafhlöðu fyrir sama verð (83.000 kr. afsláttur) |
- Kraftmikill og hljóðlátur Bafang M420 miðjumótor með mikinn togkraft 80 Nm.
- QWIC hugbúnaður – með kraft og þægindi að leiðarljósi.
- Skýr og notendavænn LED litaskjár á stýri með: 5 þrepa kraftstilli, hraðamæli, rafhlöðumæli o.fl. Gönguhnappur þar sem mótor aðstoðar þegar hjólið er teymt.
- 7 gíra viðhaldsfrír Shimano Nexus gírskiptir, innbyggður í afturhjóli (engin utanáliggjandi tannhjól).
- Reim drif: CTX reim. Reim í stað keðju, sem gerir hjólið léttara, þýðara og hljóðlátara. Líftími reimarinnar er margföld á við keðju eða allt að 30.000 km.
- Bremsur: Shimano MT200 glussa diskabremsur að framan og aftan.
- Framdempari– stillanlegur.
- Sætisdempari – stillanlegur.
- Stillanlegt stýri.
- LED ljós að framan og aftan með rofa í skjá. Framljós 35 Lux. + Q-dagljós
- Ljósanemi (stillanlegur) sem kveikir sjálfkrafa á ljósunum er rökkva tekur.
- MIK-HD bögglaberi sem er byltingarkennd hönnun. Með einu klikki er hægt að festa á bögglaberann, ýmsar gerðir af körfum, töskum og barnastól. Einnig fylgir þreföld teygja fyrir vörur.
- Lás: ABUS Shield – sami lykill gengur að rafhlöðu.
- Stöðugur standari, bjalla o.fl.
- Dekk: Schwalbe – Big Ben 50-622
- Hjólastærð: 28 tommur.
- Þyngd: 27 kg (án rafhlöðu).
- Litur: Brúnt (Desert Copper) og Grátt
- Stærðir: Unisex: M, L, XL
- AUKAHLUTUR: Hleðslustöð sem hleður rafhlöðuna á u.þ.b. þremur klst. – eða vaktar og viðheldur hleðslunni á rafhlöðunni í u.þ.b. 70%, þegar hún stendur ónotuð í langan tíma. Hleðslustöðin hlaut hin virtu alþjóðlegu iF hönnunarverðlaun.
- AUKAHLUTUR: GPS þjófavörn. (Með fyrirvara um áskrift á Íslandi).
- AUKAHLUTUR: 100 cm lásakeðja sem tengist beint við lásinn, svo hægt sé að tjóðra hjólið t.d. við ljósastaur
Ábyrgð:
- Rafhlaða 5 ár
- Hjólastell 5 ár
- Rafbúnaður 2 ár
- Gaffall, dempari 1 ár
Rafhlaða
Rafhlaðan er dýrasti og viðkvæmasti hluturinn á rafmagnshjólinu, þess vegna er afar brýnt að meðhöndla rafhlöðuna rétt frá upphafi, svo drægnin og líftíminn verði sem mestur.
Það er eðli allra Litíum-ion rafhlaða að þær rýrna með tímanum, jafnvel þó þær séu ekki í notkun. Rafhlöðuframleiðendur gefa út að rýrnunin sé allt að 15% á ári. Ef rafhlaðan fær rétta meðhöndlun frá upphafi, verður rýrnunin minni. Ábyrgðartími rafhlöðunnar er 2 ár (Mira Tour 5 ár) að því gefnu að hún sé rétt meðhöndluð.
- Kjörhitastig Litíum-ion rafhlaðna er 25°C.
- Það er afar brýnt að tæma nánast alla hleðsluna út af nýrri rafhlöðu í fyrstu 10 skiptin (helst alveg). Eftir það hefur rafhlaðan náð fullri afkastagetu. Ef þetta er ekki gert, er hætta á að rafhlaðan nái aldrei fullri afkastagetu. Eftir þessi 10 skipti, skal ekki hlaða rafhlöðuna of ört – helst ekki fyrr en hún er undir 50%. Annan til þriðja hvern mánuð er æskilegt að fara með hleðsluna nokkuð neðarlega 20 – 15%.
- Þegar rafhlöðunni er stungið í hleðslu, þarf hitastigið í sjálfri rafhlöðunni, vera a.m.k. 10°C. Best ef hitastigið er sem næst stofuhita, því þá er það næst kjörhitastiginu sem er 25°C.
- Ef rafhlaðan tæmist – verður að hlaða hana innan 8 klst. Annars verður hún fyrir óbætanlegum skaða.
- Rafhlaða sem á að standa ónotuð í nokkra mánuði, geymist best við 60 – 70% hleðslu. Ráðlegt er að aftengja rafhlöðuna frá hjólinu. Stingið svo rafhlöðunni í hleðslu einu sinni í mánuði í u.þ.b. 20 – 30 mínútur, eða þar til kjörgeymslustöðu 60 – 70% er náð. (Betra er að fullhlaða en að hlaða ekki neitt). Það er afar brýnt að fylgja þessu eftir. Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki er hlaðið a.m.k. á 3ja mánaða fresti.
- Ekki láta rafhlöðuna standa lengur í hleðslutækinu en 48 klst. Eftir hleðslu, þarf að taka hleðslutækið úr sambandi úr veggtenglinum.
- QWIC notar einungis nýjustu og bestu Litíum-ion rafhlöður sem finnast á markaðnum. Þær eru í flokki 18650 NCM Li-ion CAN-BUS og 21700 NCM Li-ion CAN-BUS, sem eru útbúnar nýjustu BMS tækni (Battery Management System) – sama tækni og bílaiðnaðurinn notar.
Drægni rafhlöðu og almennt viðhald
Ýmsir utanaðkomandi þættir skipta máli m.a.:
- Uppgefnar drægnistölur frá framleiðanda miðast við kjöraðstæður sem er: malbikaður og sléttur vegur, gíraval, veðurfar, 75 kg hjólreiðamaður og ekkert hlass; 22 – 25°C hitastig, stöðugur 20 km hraði, enginn mótvindur og aldrei stoppað.
- Í kulda er drægnin styttri. Við 0°C allt að 30% og við -10°C allt að 50% (hámarks viðmiðunar tölur). Ávallt skal taka vindkælingu með í útreikninginn (- 2°C lofthiti og 6 m/sek., er á við – 9°C)
- Hvaða þrep er kraftstillirinn stilltur á 1 -5.
- QWIC hjól með Bafang mótor, er oftast nóg að hjóla á krafti 1– 3 á jafnsléttu– en í brekkum á krafti 4 og 5.
- Réttur loftþrýstingur í dekki hefur mikið að segja. Við daglega notkun er best er að pumpa á ½ mánaða fresti.
- Æskilegast er að geyma hjólið inni þegar það er ekki í notkun.
- Forðist öll högg á dekk og felgur, þegar hjólað er upp á eða fram af gangstéttabrún (sem skal helst forðast). Ef höggið er mikið er alltaf hætta á að teinn brotni eða slanga springi.
- Best er að þrífa hjólið með rakri tusku og sápulegi. Vatnsþrýstingur er stranglega bannaður við þrif á mótor, rafbúnaði og gírnafi.
- Reglulegt viðhald og þrif er mjög mikilvægt.
Annað sem gott er að vita
- Við flutning á alltaf að taka rafhlöðuna úr hjólinu.
- Forðist að „troða“ hjólinu inn í skott á bíl. Reynslan sýnir að oftast verður einhver skaði, s.s. á brettum, keðjuhlíf, ljósi o.fl.
- Aldrei má setja hjólið í „hefðbundinn hjólastand“ (stundum kallað gjarðarbani). Hjólið er þungt og við hliðar högg getur gjörðin auðveldlega skemmst.
- Leggið alltaf hjólinu þar sem hjólið er sýnilegt og fólk á ferli. Annars er hætta á að þjófarnir geti verið að dunda sér að sarga lásinn í sundur með slípirokki o.s.fr.