Description
ATLAS Tour er í flokknum Möl og malbik (e. Adventure). Sannkallað ævintýra hjól með frábæra aksturseiginleika. Það er jafnvígt sem borgarhjól sem og á malarvegum eða torfærðum vegaslóðum. Það er sterkbyggt og kraftmikið (90 Nm) og með stóra rafhlöðu 756 Wh. Hjólið hefur hlotið m.a. hin virtu verðlaun „German Design Award.“
Hjólið er með reim í stað keðju, stiglausan gír með 380% gírhlutfall, gírinn er innbyggður í afturhjóli (engin utanáliggjandi tannhjól). Góður MIK-HD bögglaberi er á hjólinu, einnig er hægt er að setja frammbögglabera, sem er aukahlutur. Hjólastærðin er 27,5“ og belgvíddin 62 mm.
Til að byrja með er þetta sérpöntun, en sýningar og prufuhjól er í verslun
Nú eru brekkurnar ekkert mál – bara gaman!
ATLAS TOUR
Rafhlaða | Drægni | Verð á hjóli |
---|---|---|
756 Wh | 80 km | 799.000 kr. |
- Mótor: BROSE S Mag – kraftmikill og hljóðlátur miðjumótor með mikinn togkraft 90 Nm.
- Rafhlaða: 756 Wh innbyggð í stelli.
- Skjár: Nettur LCD Bluetooth skjár.
- Gír: ENVILO – stiglaus „viðhaldsfrír gír“ innbyggður í afturhjóli með 380% gírhlutfall – engin utanáliggjandi tannhjól.
- Reim í stað keðju. Líftími reimarinnar er margföld á við keðju eða allt að 25.000 km.
- Frammljós: LED 155 LUX + Q-dagljós.
- Afturljós: LED.
- Glussabremsur: Magura CT.
- Loftdempari: RST, Travel 100mm
- Sætisdempari – stillanlegur
- Stillanlegt stýri.
- MIK-HD bögglaberi sem er byltingarkennd hönnun. Með einu klikki er hægt að festa á bögglaberann, ýmsar gerðir af körfum, töskum og barnastól. Einnig fylgir þreföld teygja fyrir vörur.
- Stöðugur standari, bjalla o.fl.
- Dekk: Schwalbe – SUPER MOTO-X.
- Hjólastærð: 27,5 tommur og belgvídd 62 mm.
- Þyngd: 26 kg (án rafhlöðu).
- Litur: Grátt, Ljósblátt og Appelsínugult.
- Stærðir: Unisex – M, L, XL
- AUKAHLUTUR: Frammbögglaberi.
- AUKAHLUTUR: Hleðslustöð sem hleður rafhlöðuna á u.þ.b. þremur klst. – eða vaktar og viðheldur hleðslunni á rafhlöðunni í u.þ.b. 70%, þegar hún stendur ónotuð í langan tíma. Hleðslustöðin hlaut hin virtu alþjóðlegu iF hönnunarverðlaun.
Rafhlaða
Rafhlaðan er dýrasti og viðkvæmasti hluturinn á rafmagnshjólinu, þess vegna er afar brýnt að meðhöndla rafhlöðuna rétt frá upphafi, svo drægnin og líftíminn verði sem mestur.
Það er eðli allra Litíum-ion rafhlaða að þær rýrna með tímanum, jafnvel þó þær séu ekki í notkun. Rafhlöðuframleiðendur gefa út að rýrnunin sé allt að 15% á ári. Ef rafhlaðan fær rétta meðhöndlun frá upphafi, verður rýrnunin minni. Ábyrgðartími rafhlöðunnar er 2 ár að því gefnu að hún sé rétt meðhöndluð.
- Kjörhitastig Litíum-ion rafhlaðna er 25°C.
- Það er afar brýnt að tæma nánast alla hleðsluna út af nýrri rafhlöðu í fyrstu 10 skiptin (helst alveg). Eftir það hefur rafhlaðan náð fullri afkastagetu. Ef þetta er ekki gert, er hætta á að rafhlaðan nái aldrei fullri afkastagetu. Eftir þessi 10 skipti, skal ekki hlaða rafhlöðuna of ört – helst ekki fyrr en hún er undir 50%. Annan til þriðja hvern mánuð er æskilegt að fara með hleðsluna nokkuð neðarlega 20 – 15%.
- Þegar rafhlöðunni er stungið í hleðslu, þarf hitastigið í sjálfri rafhlöðunni, vera a.m.k. 10°C. Best ef hitastigið er sem næst stofuhita, því þá er það næst kjörhitastiginu sem er 25°C.
- Ef rafhlaðan tæmist – verður að hlaða hana innan 8 klst. Annars verður hún fyrir óbætanlegum skaða.
- Rafhlaða sem á að standa ónotuð í nokkra mánuði, geymist best við 60 – 70% hleðslu. Ráðlegt er að aftengja rafhlöðuna frá hjólinu. Stingið svo rafhlöðunni í hleðslu einu sinni í mánuði í u.þ.b. 20 – 30 mínútur, eða þar til kjörgeymslustöðu 60 – 70% er náð. (Betra er að fullhlaða en að hlaða ekki neitt). Það er afar brýnt að fylgja þessu eftir. Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki er hlaðið a.m.k. á 3ja mánaða fresti.
- Ekki láta rafhlöðuna standa lengur í hleðslutækinu en 48 klst. Eftir hleðslu, þarf að taka hleðslutækið úr sambandi úr veggtenglinum.
- QWIC notar einungis nýjustu og bestu Litíum-ion rafhlöður sem finnast á markaðnum. Þær eru í flokki 18650 NCM Li-ion CAN-BUS og 21700 NCM Li-ion CAN-BUS, sem eru útbúnar nýjustu BMS tækni (Battery Management System) – sama tækni og bílaiðnaðurinn notar.
Drægni rafhlöðu og almennt viðhald
Ýmsir utanaðkomandi þættir skipta máli m.a.:
- Uppgefnar drægnistölur frá framleiðanda miðast við kjöraðstæður sem er: malbikaður og sléttur vegur, gíraval, veðurfar, 75 kg hjólreiðamaður og ekkert hlass; 22 – 25°C hitastig, stöðugur 20 km hraði, enginn mótvindur og aldrei stoppað.
- Í kulda er drægnin styttri. Við 0°C allt að 30% og við -10°C allt að 50% (hámarks viðmiðunar tölur). Ávallt skal taka vindkælingu með í útreikninginn (- 2°C lofthiti og 6 m/sek., er á við – 9°C)
- Hvaða þrep er kraftstillirinn stilltur á 1 -5.
- QWIC hjól með Bafang mótor, er oftast nóg að hjóla á krafti 1– 3 á jafnsléttu– en í brekkum á krafti 4 og 5.
- Réttur loftþrýstingur í dekki hefur mikið að segja. Við daglega notkun er best er að pumpa á ½ mánaða fresti.
- Æskilegast er að geyma hjólið inni þegar það er ekki í notkun.
- Forðist öll högg á dekk og felgur, þegar hjólað er upp á eða fram af gangstéttabrún (sem skal helst forðast). Ef höggið er mikið er alltaf hætta á að teinn brotni eða slanga springi.
- Best er að þrífa hjólið með rakri tusku og sápulegi. Vatnsþrýstingur er stranglega bannaður við þrif á mótor, rafbúnaði og gírnafi.
- Reglulegt viðhald og þrif er mjög mikilvægt.
Annað sem gott er að vita
- Við flutning á alltaf að taka rafhlöðuna úr hjólinu.
- Forðist að „troða“ hjólinu inn í skott á bíl. Reynslan sýnir að oftast verður einhver skaði, s.s. á brettum, keðjuhlíf, ljósi o.fl.
- Aldrei má setja hjólið í „hefðbundinn hjólastand“ (stundum kallað gjarðarbani). Hjólið er þungt og við hliðar högg getur gjörðin auðveldlega skemmst.
- Leggið alltaf hjólinu þar sem hjólið er sýnilegt og fólk á ferli. Annars er hætta á að þjófarnir geti verið að dunda sér að sarga lásinn í sundur með slípirokki o.s.fr.