Description
SÖLUHÆSTA HJÓLIÐ
Premium i-MN7+ er verðlauna lúxus hjól og flaggskipið okkar. Rafhlaðan er innbyggð í framstellið, sem er ekkert mál að fjarlægja með sama lykli og gengur að lás. Þetta er vinsælasta og söluhæsta hjólið, enda vandlega útbúið, stílhreint og mjög sterkbyggt (e.stiff) – sem er einkenni QWIC hjólanna.
417 Wh rafhlaða. Við á kaup á hjólinu er hægt að velja stærri rafhlöðu 540 Wh.
Kraftmikill og hljóðlátur Bafang M420 miðjumótor með QWIC hugbúnaði og mikinn togkraft 80 Nm.
LCD litaskjár með USB tengi til að hlaða síma o.fl.
Vandað handverk m.a. tvöfaldar suður og sumar þeirra fínpússaðar. Afar smekklegur frágangur á börkum og snúrum.
Viðhaldslítið og notendavænt hjól: 7 innbyggðir gírar, Shimano eða NUTT diskabremsur, ál-aurbretti, lokuð keðjuhlíf, gott sæti með stillanlegum dempara, stillanlegur framdempari, stillanlegt stýri, ljósanemi sem kveikir sjálfkrafa á ljósum er rökkva tekur, LED fram og afturljós o.m.fl.
Nú eru brekkurnar ekkert mál – bara gaman!
Premium i MN7+
Rafhlaða | Drægni | Verð á hjóli |
---|---|---|
417 Wh | 55 - 140 km | 455.000 kr. |
540 Wh | 75 - 180 km | 499.000 kr. |
- Kraftmikill 250 W / 36V Bafang M420 miðjumótor með mikinn togkraft – 80 Nm.
- Rafhlaða: Innfelld í framstellið – ekkert mál er að fjarlægja með sama lykli og er að lás.
- QWIC hugbúnaður – með kraft og þægindi að leiðarljósi.
- Einfaldur og notendavænn LED litaskjár á stýri með: 5 þrepa kraftstilli, hraðamæli, rafhlöðumæli o.fl. Gönguhnappur þar sem mótor aðstoðar þegar hjólið er teymt.
- Hleðslutími: 3 – 6 klst.
- 7 gíra viðhaldsfrír Shimano Nexus gírskiptir, innbyggður í afturhjóli (engin utanáliggjandi tannhjól).
- Bremsur: Shimano MT200 eða NUTT glussabremsur að framan og aftan.
- Framdempari– stillanlegur.
- Sætisdempari – stillanlegur.
- Stillanlegt stýri.
- LED ljós að framan og aftan með rofa í skjá. Framljós Busch & Müller Upp – 30 Lux.
- Ljósanemi (stillanlegur) sem kveikir á ljósunum sjálfkrafa er rökkva tekur.
- MIK bögglaberi. Byltingarkendur bögglaberi með hraðtengi fyrir ýmsar gerðir af körfum og töskum, barnastól og þrefaldri teygju fyrir vörur.
- Lokuð keðjuhlíf, sem hlífir keðjunni að mestu fyrir óhreinindum.
- Lás: ABUS – sami lykill gengur að rafhlöðu.
- Stöðugur standari, bjalla o.fl.
- Dekk: Schwalbe Energizer PLUS eða Schwalbe Road Cruiser
- Hjólastærð: 28 tommur.
- Þyngd: 24.9 kg (án rafhlöðu).
- Litur: Grátt, Blátt, Svart, Kakí-grænt.
- Stærðir: Konuhjól: S, M, L, XL – Karlahjól L, XL
Ábyrgð:
– Hjólastell 5 ár.
– Rafbúnaður 2 ár.
– Gaffall, dempari 1 ár.
QWIC notar einungis nýjustu og bestu Litíum-ion rafhlöður sem finnast á markaðnum. Þær eru í flokki 18650 NCM Li-ion CAN-BUS og 21700 NCM Li-ion CAN-BUS, sem eru útbúnar nýjustu BMS tækni (Battery Management System) – sama tækni og bílaiðnaðurinn notar.
RAFHLAÐAN – hvað þarf ég að vita?
Það er eðli allra Litíum-ion rafhlaða að þær rýrna með tímanum, jafnvel þó þær séu ekki í notkun. Rafhlöðuframleiðendur gefa út að rýrnunin sé allt að 15% á ári. Ef rafhlaðan fær rétta meðhöndlun frá upphafi, verður rýrnunin minni. Ábyrgðartími rafhlöðunnar er 2 ár, að því gefnu að hún sé rétt meðhöndluð.
Rafhlaðan er dýrasti og viðkvæmasti hluturinn á rafmagnshjólinu, þess vegna er afar brýnt að meðhöndla rafhlöðuna rétt frá upphafi, svo drægnin og líftíminn verði sem mestur.
- Kjörhitastig Litíum-ion rafhlaðna er 25°C.
- Það er afar brýnt að tæma nánast alla hleðsluna út af nýrri rafhlöðu í fyrstu 10 skiptin (helst alveg). Eftir það hefur rafhlaðan náð fullri afkastagetu. Ef þetta er ekki gert, er hætta á að rafhlaðan nái aldrei fullri afkastagetu. Eftir þessi 10 skipti, skal ekki hlaða rafhlöðuna of ört – helst ekki fyrr en hún er undir 50%. Annan til þriðja hvern mánuð er æskilegt að tæma rafhlöðuna (eða því sem næst 15-20%).
- Þegar rafhlöðunni er stungið í hleðslu, þarf hitastigið í sjálfri rafhlöðunni, vera a.m.k. 10°C. Best ef hitastigið er sem næst stofuhita, því þá er það næst kjörhitastiginu sem er 25°C.
- Ef rafhlaðan tæmist – verður að hlaða hana innan 8 klst. Annars verður hún fyrir óbætanlegum skaða.
- Rafhlaða sem á að standa ónotuð í nokkra mánuði, geymist best við 60 – 70% hleðslu. Best er að aftengja rafhlöðuna frá hjólinu. Stingið svo rafhlöðunni í hleðslu einu sinni í mánuði í u.þ.b. 20 – 30 mínútur, eða þar til kjörgeymslustöðu 60 – 70% er náð. (Betra er að fullhlaða en að hlaða ekki neitt). Það er afar brýnt að fylgja þessu eftir. Ábyrgðin fellur úr gildi ef ekki er hlaðið a.m.k. á 3ja mánaða fresti.
- Ekki láta rafhlöðuna standa lengur í hleðslutækinu en 48 klst. Eftir hleðslu, þarf að taka hleðslutækið úr sambandi úr veggtenglinum.
Hversu langt er hægt að hjóla á fullri rafhlöðu?
Ýmsir utanaðkomandi þættir skipta máli m.a.:
- Uppgefnar drægnistölur frá framleiðanda miðast við kjöraðstæður sem er: malbikaður og sléttur vegur, gíraval, veðurfar, 70 kg hjólreiðamaður og ekkert hlass; 22 – 25°C hitastig, stöðugur 20 km hraði, enginn mótvindur og aldrei stoppað.
- Í kulda er drægnin styttri. Við 0°C allt að 30% og við -10°C allt að 50% (hámarks viðmiðunar tölur). Ávallt skal taka vindkælingu með í útreikninginn (- 2°C lofthiti og 6 m/sek., er á við – 9°C)
- Hvaða þrep er kraftstillirinn stilltur á?
- QWIC hjól með Bafang mótor, er oftast nóg að hjóla á krafti 1– 3 á jafnsléttu– en í brekkum á krafti 4 og 5.
- Réttur loftþrýstingur í dekki hefur mikið að segja. Við daglega notkun er best er að pumpa á ½ mánaða fresti.
- Æskilegast er að geyma hjólið inni þegar það er ekki í notkun.
- Forðist öll högg á dekk og felgur, þegar hjólað er upp á eða fram af gangstéttabrún (sem skal helst forðast). Ef höggið er mikið er alltaf hætta á að teinn brotni eða slanga springi.
- Reglulegt viðhald og þrif er mjög mikilvægt.
Annað sem gott er að vita
- Við flutning verður alltaf að taka rafhlöðuna úr hjólinu.
- Forðist að „troða“ hjólinu inn í skott á bíl. Reynslan sýnir að oftast verður einhver skaði, s.s. á brettum, keðjuhlíf, ljósi o.fl.
- Aldrei má setja hjólið í „hefðbundinn hjólastand“ (stundum kallað gjarðarbani). Hjólið er þungt og við hliðar högg getur gjörðin auðveldlega skemmst.
- Leggið alltaf hjólinu þar sem hjólið er sýnilegt og fólk á ferli. Annars er hætta á að þjófarnir geti verið að dunda sér að sarga lásinn í sundur með slípirokki o.s.fr.