Description
New Looxs hjólatöskurnar koma frá hjólalandinu Hollandi. Töskurnar eru flottar og praktískar. Þær eru hannaðar með það í huga að líta út sem venjulegar töskur. Töskurnar líta ekki út fyrir að vera hjólatöskur, því bögglaberakrókarnir eru faldir innaní vasa með rennilás á bakhlið. Flestar handtöskurnar eru með stillanlega axlaról, sem hægt er að fela eða fjarlægja eftir þörfum.
Vatnshelt Polyester
24,5 lítra ǀ 36 x 36 x 19 cm
- Einföld og praktísk taska
- Hönnuð og sniðin fyrir bögglabera
- Aðalhólf/vasi + framvasi + hliðarvasar
- Endurskinsrendur